Rafmyntasjóður

fyrir fagfjárfesta

Viska rafmyntasjóður er fyrsti sérhæfði rafmyntasjóðurinn á Íslandi.

Skrifað þann

Meta skoðar notkun stöðugleikamynta


Meta (áður Facebook) er nú í viðræðum við fyrirtæki í rafmyntageiranum um að nýta stöðugleikamyntir (e. stablecoins) sem greiðslur til notenda á Instagram og fleiri miðlum sínum. Fyrirtækið telur sig geta sparað sér umtalsverðan kostnað og tíma með því að nýta þessa nýju tækni. Stöðugleikamyntir nýta sér bálkakeðjutækni (e. blockchain) til þess að senda greiðslur milli heimshluta á örstundu með mun ódýrari hætti en hefðbundnar bankamillifærslur.

SpaceX nýtir nú þegar stöðugleikamyntir í starfsemi sinni. Félagið starfar í yfir 130 löndum þar sem fjármálainnviðir eru oft vanþróaðir. Þar innheimtir félagið greiðslur í staðbundinni mynt, sem er samstundis skipt yfir í stöðugleikamynt í bandaríkjadollar og síðan lögð inn á reikninga félagsins. Þessi leið reynist bæði öruggari, hagkvæmari og mun hraðari en hefðbundnar bankamillifærslur.

Í Bandaríkjunum er ný löggjöf um stöðugleikamyntir nú á lokastigi á Bandaríkjaþingi. Hún veitir bandarískum bönkum heimild til að nýta slíkar myntir á sambærilegan hátt og hefðbundna gjaldmiðla. Jafnframt eru settar strangar reglur um útgefendur stöðugleikamynta til að tryggja gegnsæi og öryggi. Yfirvöld í Bandaríkjunum telja að umfang stöðugleikamynta á heimsvísu geti náð þúsundum milljarða dollara á næstu árum – margfalt meira en nú er. Með tilkomu nýrra laga má búast við aukinni notkun tækni af þessu tagi bæði af fyrirtækjum og fjármálastofnunum.


Höfundur
Guðlaugur Steinarr GíslasonFjárfestingastjóri - Meðstofnandi