Rafmyntasjóður

fyrir fagfjárfesta

Viska rafmyntasjóður er fyrsti sérhæfði rafmyntasjóðurinn á Íslandi.

Skrifað þann

Harvard fjárfestir í Bitcoin


Fjárfestingasjóður Harvard háskóla (e. endowment) hefur tilkynnt um 116 milljóna dollara fjárfestingu í iShares Bitcoin kauphallarsjóði (IBIT) frá BlackRock, samkvæmt nýlegri tilkynningu til eftirlitsaðila. Tilkynningin sýnir að sjóðurinn átti 1,9 milljónir hluta þann 30. júní. Þessi ákvörðun vekur sérstaka athygli í ljósi þess að fyrir aðeins nokkrum árum síðan spáði þekktur hagfræðingur frá Harvard hruni Bitcoin, en hann hefur síðan þá dregið þá spá til baka.

Sterk sannfæring í verki

Umfang fjárfestingarinnar er eftirtektarverð, en eign sjóðsins í Bitcoin-sjóðnum var stærri en hlutur hans í Alphabet, móðurfélagi Google og í Nvidia. Þessi fjárfesting er hluti af vaxandi trendi, þar sem aðrir stórir fjárfestingasjóðir háskóla og fagfjárfestar hafa byrjað að að fjárfesta í rafmyntum í gegnum kauphallarsjóði.

Samkvæmt Eric Balchunas, sérfræðingi í kauphallarsjóðum hjá Bloomberg, er Harvard 29. stærsti eigandi verðbréfasjóðsins af 1300.

Nýr staðall fyrir fagfjárfesta

Notkun Harvard á IBIT sjóði BlackRock er sterk staðfesting á því að kauphallarsjóðir séu sú leið sem fagfjárfestar kjósa til að komast inn á markaðinn á löglegan og aðgengilegan hátt. Þetta skapar í raun fyrirmynd fyrir aðra íhaldssama sjóði um hvernig hægt er að samþætta rafmyntir inn í stórt og fjölbreytt eignasafn á meðan farið er eftir ströngum innri reglum um stjórnarhætti og áhættustýringu.

Blackrock IBIT ETF innflæði eftir The Block, 20.8.25

116 milljóna dollara fjárfesting Harvard er ein sterkasta staðfestingin til þessa á því að Bitcoin sé raunhæfur kostur í nútíma eignasafni fagfjárfesta. Hún sýnir hvernig regluvæddar vörur hafa skapað leið fyrir íhaldssama sjóði, sem mun líklega verða til þess að aðrir langtímafjárfestar fari sömu leið.

Mynd af Harvard háskólasvæði, Cambridge, MA, USA

Fylgið Visku á LinkedIn og á Substack til að fá tilkynningar um nýjustu færslurnar okkar.
LinkedIn: https://www.linkedin.com/company/viskadigital
Substack: https://viskadigital.substack.com/


Höfundur
Daði KristjánssonFramkvæmdastjóri - Meðstofnandi