Rafmyntasjóður

fyrir fagfjárfesta

Viska rafmyntasjóður er fyrsti sérhæfði rafmyntasjóðurinn á Íslandi.

Skrifað þann

Rafmyntafyrirtæki sækja fram - Coinbase tekið inn í S&P 500


Eftir lokun markaða í gær var tilkynnt að hlutabréf rafmyntakauphallarinnar Coinbase yrðu tekin inn í eina stærstu hlutabréfavísitölu heims, S&P 500. Þetta markar tímamót fyrir bæði fyrirtækið og rafmyntageirann í heild og er enn ein staðfestingin á vaxandi samþættingu rafmyntageirans við hefðbundin fjármálakerfi.

Það að vera tekinn inn í S&P 500 vísitölu þýðir að Coinbase uppfyllir ströng skilyrði um stærð, seljanleika og arðsemi, og að það sé orðið eitt af 500 stærstu skráðu fyrirtækjunum í Bandaríkjunum. Þetta skref eykur sýnileika fyrirtækisins gagnvart stofnanafjárfestum og tryggir að fjölmargir vísitölusjóðir þurfi nú að kaupa hlutabréf í því.

Fjárfestar hafa tekið tíðindunum vel enda hafa hlutabréf í Coinbase hækkað um tæplega 10% á eftirmarkaði (pre-market) þegar þetta er skrifað.

Auk þess tilkynnti Coinbase í síðustu viku um kaup á Deribit, stærstu kauphöll heims fyrir valrétti á Bitcoin og Ethereum, fyrir um 2,9 milljarða dollara. Þetta er stærsta yfirtaka Coinbase til þessa og markar afgerandi skref inn á ört vaxandi markað afleiðusamninga í rafmyntum.

Annað áberandi rafmyntatengt félag, Strategy (MSTR), áður MicroStrategy, var tekið inn í Nasdaq-vísitöluna í fyrra en félagið er þekkt fyrir að eiga stærsta safn af Bitcoin meðal skráðra fyrirtækja. Með sívaxandi vægi fyrirtækja sem byggja framtíð sína á rafmyntum er ljóst að þessi geiri er ekki lengur á jaðrinum heldur orðinn sífellt stærri hluti af alþjóðlegum markaði.


Höfundur
Daði KristjánssonFramkvæmdastjóri - Meðstofnandi